Oddny

mánudagur, október 25, 2004

komin með nýtt blogg

ég er komin með nýtt blogg og hætti ´því að skrifa hérna á þetta blogg, slóðin er www.blog.central.is/oddnyhin
sjáumst þar

föstudagur, október 22, 2004

Hagstjórnardagurinn

í dag er Hagstjórnardagurinn, þá keppast hagfræðinemar og stjórnmálafræðinemar í t.d. sjómanni, ræðukeppni og fleiru. Við unnum í fótboltanum í gær...(vissi ekki að við gætum eitthvað í fótbolta, sko hagfræðin) en svona er það. Ég var beðin um að vera liðstjóri í ræðuliðinu en sagði nei við því þannig að það er ein stelpa sem verður það og verður maður nú að kíkja á hana og hvetja:)
ég er nú komin á bókhlöðuna og það er eiginlega enginn hérna inni, það er yfirleitt enginn á föstudögum greinilega að læra, ég er að reyna að dunda mér við ritgerðina því að ég og Ásgerður ætlum að hittast á morgun og bera saman bækur okkar, svakalegt stuð.
ég fór á æafingu í fyrradag og Stebbi þjálfari sagði að þetta ætti að vera létt æfing, en nei þetta var geggjað erfitt, maður á greinilega ekki að trúa því sem hann segir, ég er ennþá með harðsperrur í kálfunum og það er ekkert smá vont, get stundum varla labbað upp eða niður stigann heima:( ekki gott mál.
jæja bless í bili

miðvikudagur, október 20, 2004

Logi

ég verð nú bara að spyrja ykkur að einu, ef ég myndi segja við ykkur að Logi væri byrjaður í badmintoni mynduð þið þá ekki alveg vita um hvern ég væri að tala?? Jú audda en nei Áslaug systa vissi það ekki þegar ég sagði henni það í fyrra. "Hvernig á ég að vita hver það er ??" sagði Áslaug. Audda er þetta enginn annar en Logi Bergmann... puhhh AUDDA:)
En er bara komin á bókhlöðuna núna og verð að halda áfram að læra, er að byrja á ritgerð og þarf að lesa heimildirnar
bæjó

þriðjudagur, október 19, 2004

Vonda veðrið!!! BRRRRR

jæja ég veit að ég hef ekki verið dugleg að skrifa á bloggið mitt, það er bara mikið að gera í skólanum og svona. Ég og Ásgerður erum að byrja að skrifa ritgerð í Haglýsingu um húsnæðislán, voða spennandi. Svo var ég í prófi á laugardaginn. En hún Björk vinkona á afmæli í dag og mamma átti afmæli í gær, til hamingju skvísur:)
vá hvað ég þoli ekki svona mikinn kulda, það er svo kalt úti og mikið rok, en sem betur fer hef ég ekkert þurft að taka strætó í skólann eða úr honum. Ásgerður og Sammi hafa verið góð að skutla mér fram og til baka.
jæja verð að halda áfram að læra
bless í bili

fimmtudagur, október 14, 2004

Þuríður Arna

hún litla frænka mín hún Þuríður Arna er farin að tala ekkert smá fullorðinslega eftir að hún byrjaði á leikskóla. Um daginn kom Áslaug að ná í hana á leikskólann og fóstrurnar sögðu henni að hún hefði farið að gráta á leikskólanum þegar allir voru úti að leika, en allt í einu heyra fóstrurnar Þuríði segja "Mamma! Veistu ekki að ég er að gráta?" heheheh hún hélt greinilega að mamma sín heyrði í sér:)

Kína spa

þetta er saga sem Áslaug systa setti inná heimasíðuna sína og er hún um okkur!! Sönn??


Oddný systir mín var lengi búin að reyna að fá mig með sér í kínverskt spa, sem hún sá auglýst einhversstaðar fyrir lítinn pening.Í sumar lét ég svo loksins undan og fór með henni. Hún var sjálf að fara í fyrsta sinn og vissi ekkert út á hvað þetta gekk.Við mættum á staðin kl 11 á laugardagsmorgni, tilbúnar í slaginn með sitthvort handklæðið og sundföt.Á hurðinni stóð "Kína heimur...velkomin og ganga inn......" Við komum inn á rauðmálaðan gang, úr loftinu héngu bréfdrekar af öllum stærðum og gerðum. Á veggjunum voru myndir af kínversku fólki með stráhatta á hausnum. Við vorum rétt komnar inn þegar lítil kínversk kona birtist út úr einhverju grænu hengi á veggnum. "Go da..." sagði hún og hneigði sig. "Já, góðan daginn" ...sagði ég og reyndi að vera extra hress "við eigum.......""Usssss.....Spa...", sagði litla kínverska konan og benti mér á að hafa ekki hátt.Ég beygði mig niður að henni og hálf hvíslaði: "við eigum pantað í spa kl 11..""Ja...spa...." sagði konan og brosti, benti okkur svo á að fylgja sér inn ganginn. Okkur var vísað inn í lítinn rauðmálaðan klefa, þar áttum við svo að afklæðast og fara í hvíta sloppa sem þar héngu. "Akkurat" sagði ég við Oddnýju.... "hver í andsk.... á að komast í þennan slopp??( Þessi ræfilssloppur hefði kannski...já kannski passað á 4ára litla stelpu). Oddný fór að hlæja og reyndi að troða sér í sinn án árangurs. Við fleygðum fjand... sloppunum út í horn sármóðgaðar. Ég opnaði hurðina til þess að kalla á kínakonuna... og dauðbrá, fyrir utan stóð lítill pervisinn kínverji, nakinn að mestu nema með hvíta skýlu.. eða bleyju utan um sig miðjan. Ég skellti hurðinni og sagði við Oddnýju; "hvað í andsk... ertu búin að koma okkur í ??, það stendur alsber kínverji hér fyrir utan !!!"Oddný ýtti mér frá og opnaði, kínverjinn stóð þarna enn,"é..núdda...." sagði hann og brosti,..."heitir hann hvað ?? spurði ég....Núddi ????"Þetta er nuddarinn !!" sagði Oddný og með það sama hneigir kallinn sig og bendir okkur á að koma með sér. Við tríttluðum á eftir honum með handklæðin utan um okkur. Oddný var fyrst á nuddbekkinn og ég átti að liggja á strámottu á gólfinu með hangandi pappírs-dreka yfir andlitinu á mér.Mér fannst þetta ekkert fyndið, ég var að drepast í bakinu liggjandi á hörðu gólfinu og til að kóróna þetta allt var heit illalyktandi gufa farin að pústa út úr munninum á drekafíflinu.Ég ákvað að fylgjast með nuddinu hennar Oddnýjar, fyrst í stað leit þetta nokkuð eðlilega út, kínverjinn var að nudda á henni axlirnar. Ég lokaði augunum og reyndi að slappa af en þá byrjuðu lætin. Litli pervisni kínverjinn rak upp gól og áður en ég vissi var hann komin upp á bekkinn til Oddnýjar og stökk um á bakinu á henni.Guð minn góður... hvað ertu að gera???.... Kallaði ég...."Adai adai adaaaaa...." sagði hann óþarflega æstur og benti á mig.What????Oddný er allt í lagi með þig? Hvíslaði ég."Jááááá.............." stundi hún og gaf mér merki með þumlinum að allt væri o.k.Kínverjinn hoppaði á henni í 15 mínútur og þá átti hún að snúa sér á bakið. Hún afþakkaði nuddið að framan."Núdda núdda..." sagði sá kínverski og benti á mig."I dont think so".... sagði ég og reyndi að standa upp, oh, my god! ..... hart gólfið og strámottan höfðu ekki gert mér gott. Ég var að drepast í bakinu og með erfiðismunum náði ég að fara á fjórar fætur. Ég ætlaði svo að fikra mig upp úr þeirri stöðu og átti virkilega ekki von á því sem gerðist næst.Kínverjinn sá sér leik á borði og eldsnökkt stökk hann upp á bakið á mér, .......nú var ég þarna á fjórum fótum með handklæði utan um mig og með nakinn kínverja á bakinu."Nu du labba og laka bak....." sagði kínverjinnWhat?....Áslaug, þú átt að labba með hann þá lagast bakið, sagði Oddný.Ég fann að ég var farin að svitna og helv.... lyktin úr gufudrekanum var að kæfa mig. Ég byrjaði að labba áfram með kínverjann á bakinu, hann hossaði sér í smástund og lagðist svo endilangur ofaná mig."Fljótaða....fljótaða...." sagði hann skipandi, ég reyndi eins og ég gat að fara hraðar en náði einhvern vegin engri ferð. Svitinn bogaði af mér og brjóstin á mér farin að dingla í allar áttir. Mér til mikillar furðu var bakið að skána, ég ætlaði að deila því með Oddnýju, lít upp á hana til að segja henni fréttirnar.....og þarna stóð hún í krampakasti af hlátri upp við einn vegginn.Þá var mér nóg boðið, hverslags fíflagangur var þetta eiginlega, ég átti að vera í einhverju dekurspai en var á fjórum fótum með lafandi brjóst og kófsveitt með nakinn kínverja á bakinu. Ég þeytti karlinum af mér sem endasentist út í vegg, stóð upp og sagði Oddnýju að við skildum koma okkur út. Ég var öskureið þegar við komum inn í rauða klefann, ætlaði að fara að klæða mig þegar kínverska konan birtist og segir: "pot.. ja???? Pot ????.....""Hvað er hún að segja " spurði ég og horfði reiðilega á Oddnýju, sem hlæjandi sagði "hún er að spyrja hvort við ætlum ekki í pottinn".Nokkrum mínútum seinna sátum við í pottinum, sem var óvenju stór og djúpur. Þetta var alveg frábært og næstum því þess virði að hafa verið auðmýkt af nakta kínverjanum. Þá birtist sú kínverska aftur og hellir einhverju grænu gumsi út í pottinn. Við Oddný lítum á hvor aðra....þvílík piparmyntulykt, váááá........... ég horfi á skælbrosandi kerlinguna og segi : "sterk lykt..." og pata svona út í loftið."Ahhhhhh...." segir kerlingin og ýtir á rofa á veggnumÞað fór allt á fleygiferð í pottinum. Kerlingin hafði sett nuddið á. Ég hef nú oft verið í pottum með nuddi... en engum eins og þessum, þetta var eitthvað turbo dæmi. Áður en ég vissi og réði við var ég farin að snúast í hringi og þeytast um allan pottinn. Ofan á allt saman var farin að myndast græn froða í pottinum. Ég var komin á töluvert mikla ferð og dauðsveið í augun af piparmyntufroðunni sem varð alltaf meiri og meiri."Oddný !..." hvar var Oddný!?..... ég reyndi á hringferð minni um pottinn að fálma eftir henni sem var ansi erfitt út af gífurlegu magni af piparmynntufroðu og þeirri ofboðslegri ferð sem ég var komin á.Ég var alveg að kafna og hélt að ég myndi deyja þarna í kínverska spainu þegar ég náði taki á pottbrúninni, ég læsti höndunum í brúnina og reyndi að blása frá mér froðunni svo ég gæti andað. Ég var ekki búin að hanga lengi á brúninni þegar eitthvað lendir á mér..... Oddný! Ég, á einhvern ótrúlegan hátt, næ að fanga hana með fótunum og draga hana að mér. Hún leit út eins og grænn froðu froskur....., hlæjandi og hóstandi náði hún taki á brúninni. Nú var sko fokið í mig, andsk.... sjálfur, hvað var að þessu kínverska fólki, var það að reyna að drepa okkur????Ég öskraði eins hátt og ég gat; "Slökkvið á nuddinu!!!!!!!!!Slökkvið á helv..... nuddinu!!!!!!!!!!"Einhver slökkti á nuddinu, ég sá ekki hver það var út af froðunni sem var orðin 1,5 metrar á hæð yfir vatnsborðinu, en ég heirði í þeirri kínversku sem öskraði á móti : "Usssss.......SPA!!!!!!!!"Við vorum rétt að jafna okkur og í einhverri taugaveiklun fórum við að hlæja...."Tata tapa..." kallar kínverska konan. Ég lít upp og þar stendur kerlingin með reiðisvip í allt of litlum sundbol með froskalappir á fótunum. Ég hafði aldrei séð annað eins.... ég horfði á Oddnýju sem sprakk úr hlátri . Kerlingin sagði eitthvað á kínversku, stakk sér á bólakaf ofaní pottinn til okkar og hvarf.Við skriðum upp úr og Oddný emjaði af hlátri, ég horfði ofaná grænu froðuna í pottinum og beið eftir að kerlingin poppaði upp.Við biðum í heila mínútu án þess að sjá hana aftur.Við flýttum okkur inn í klefann og klæddum okkur eins hratt og við gátum.Það voru dauðuppgefnar systur sem hlupu út af kínaspastaðnum án þess að borga þennan viðburðaríka laugardag. .....og hana nú!!!

þriðjudagur, október 12, 2004

fyrsta æfingin

ég fór á fyrstu æfinguna mína í gær:) fór fyrst út að skokka í smá tíma í grenjandi rigningu og fór svo á smá æfingu, mér fannst það bara fínt nema þegar ég vaknaði í morgun og var með geggjaðar harðsperrur. Ég get varla gengið núna vá maður... Já það var mjög fínt á æfingu, vorum reyndar fá og við töluðum einmitt um það að það vantaði alveg Berglindi og Laufeyju:) Ásgerður ætlar nú að reyna að byrja að mæta með mér.
já og ég vildi nú bara segja til hamingju Ólöf (systir Óskars sem er maður systir minnar, þeir sem vita það ekki) með trúlofunina, skvísan var nebla að trúlofa sig á laugardaginn:) (ég veit nú samt ekki hvort að hún les bloggið mitt en samt)

mánudagur, október 11, 2004

well well

jæja þá er ný vika að byrja. Ég gerði bara eiginlega ekkert um helgina, fór í próf á laugard. í þjóðhagfræði, gekk lala. Svo var ég að passa á laugard.kvöldið, það var fínt að fá smá auka pening, þar sem maður er fátækur námsmaður...
Fyrsta tönnin fannst hjá Oddnýju litlu um helgina:) voða gaman, orðin svo stór stelpa. Svo sendi Áslaug mér sms í morgun og sagði mér ða Þuríður sagði í morgun "Sammi minn koma í heimsókn og knúsa mig" vá hvað þetta var sætt, hún sko hreinlega elskar Samma. Alltaf þegar við komum í heimsókn þá vill hún bara vera hjá honum og reyndar Oddný litla hjá mér... grætur bara hjá Samma hehehe, bara um leið og hún sér mig þá bara eitt bros (er sko 5 og hálfs mánaða).
ég fórí bíó í gær á Wimbeldon með Samma, Hrafnhildi og Bjössa og mér fannst hún góð.
bless bless